Sleppa beint í aðalefni

Árstíðabundin vara · Forpöntun

Franskur hvítlaukur frá Lautrec – Ail Rose

Franskur hvítlaukur frá Lautrec í Tarn – fallega bleikur, mildari og sætari en venjulegur hvítlaukur, og geymist ótrúlega lengi - einn besti hvítlaukur heims. Label Rouge og upprunavottaður.

Forskráningu er lokið
Ail Rose de Lautrec — bleikur hvítlaukur frá Tarn

Sagan


Hvítlaukurinn okkar bleiki og ljúfi sem við fáum frá Lautrec í Tarn-héraði Frakklands er einstök vara. Bleikröndóttur hvítlaukurinn kemur í knippum, bundinn saman á hefðbundna mátann, ýmist í hálfu eða heilu kílógrammi. Hann er ekki aðeins sérstakur vegna þess að hann býr yfir ógleymanlegu, fíngerðu og fjölvíðu bragði - heldur er hann fyrst og fremst sérstakur vegna þess að hann geymist svo vel. Við tókum tvö kíló af hvítlauk heim í lok ágúst 2025 og nú, er ég sit og skrifa þetta í júní 2026, höfum við klárað eitt kíló og erum ennþá að vinna okkur í gegnum annað, sem stendur ennþá fyrir sínu.

Hvítlaukurinn er merktur "Label Rouge", sem er strangt gæðavottunarmerki frá franska landbúnaðarráðuneytinu - og hann er sömuleiðis upprunavottaður (IGP). Það er einfaldlega ekki hlaupið að því að hafa uppi á eins góðum og flottum hvítlauk þótt víða væri leitað.

Vegna þess að þetta er einmitt vandfundinn og eftirsóknarverð vara fáum við aldrei eins mikið af honum og við viljum; við fáum hluta af einni uppskeru frá einum bónda einu sinni á ári og varan selst yfirleitt upp með miklum hraða og gauragangi strax í september-október, fáeinum vikum eftir að hún lendir hjá okkur. Nú höfum við tekið upp á því að opna á forskráningu fyrir hvítlaukinn - svo ef þú vilt tryggja þér eintak geturðu fyllt út formið hér að neðan, og við skrifum þér línu þegar hann er kominn í hús til okkar. Þú greiðir ekkert fyrirfram og ert ekki að skuldbinda þig með því að skrá þig.

Forskráningu er lokið


Forskráningunni er lokið og hvítlaukurinn kemur í hús til okkar í vikunni.

Við látum alla á listanum vita – með tölvupósti, símtali eða SMS – þegar knippið þeirra er tilbúið.

Það sem er ekki frátekið seljum við í búðinni á Skólavörðustíg 4a. Þar er opið kl. 11–18 alla daga nema sunnudaga.

Við hverju má búast


Tímasetning

Uppskeran er í júlí, og svo er hvítlaukurinn hengdur til þerris í tvær vikur. Svo þarf að koma honum áleiðis til Íslands, sem tekur alltaf um það bil 4 vikur eða svo – þannig að við væntum þess að fá hann í hús til okkar um ágústlok eða septemberbyrjun.

Magn

Takmarkað — við flytjum eins mikið og geymsla og flutningar leyfa. Þeir sem eru á listanum fá fyrstir aðgang þegar hann fer í sölu.