Fara í efni

Reykjavík · Stofnuð 2017

Menningarstofnun í míníatúr.

Við höfum starfað í þágu smekkvísinnar í hartnær níu ár.

Inside the Hyalin shop on Skólavörðustígur

Rauði þráðurinn


Árið 2015 voru frönsku hjónin Arnaud-Pierre Fourtané og Didier Fitan nýfluttir til Reykjavíkur, smekkvísir menn og sælkerar báðir tveir. Alla sína tíð á meginlandinu höfðu þeir gengið að breiðu úrvali gæðahráefnis sem gefnu, en staðan var önnur á Íslandi. Svo brösulega gekk þeim að finna allt það góða sem þeir voru vanir að snæða í matvöruverslunum landans að þeir ákváðu að breyta ástandinu til hins betra.

Arnaud-Pierre og Didier stofnuðu sælkeraverslunin Hýalín árið 2017, en þá var verslunin til húsa á horni Hverfisgötu og Klapparstígs, gegnt fornbókabúðinni Bókinni. Rúm níu ár eru liðin síðan þá, mörg vötn runnin til sjávar og ýmislegt hefur breyst; húsakosturinn, varningurinn – jafnvel eigendurnir.

Í árslok 2024 bjuggu Arnaud-Pierre og Didier sig undir að flytja aftur til Frakklands og auglýstu verslunina til sölu. Í janúar 2025 tóku íslensku hjónin Védís Eva og Karl Ólafur við keflinu. Þau höfðu lengi verið fastagestir í versluninni enda miklir unnendur þeirrar vönduðu matargerðar sem finna má á meginlandinu og víðar. Þau kappkosta að standa vörð um það sem gerir Hýalín að Hýalín, og undirstrika enn frekar áhersluna á vönduð hráefni, heimilislegt andrúmsloft, framúrskarandi þjónustu og góðan smekk.

Þótt ýmislegt breytist í tímans rás slær hjarta Hýalín enn sama stöðuga, þrískipta taktinn sem fyrr - í þágu alls þess sem er ljúffengt, vandfundið og fagurt.

Vöruúrvalið


Til þess að viðhalda gæðastaðlinum sem Hýalín hefur ávallt verið þekkt fyrir þurfum við að handvelja birgjana okkar af natni og kostgæfni. Þess vegna kaupum við ekki bara inn til þess að tékka í boxin, heldur verslum við fyrst og fremst beint við framleiðendur sem við treystum og sem við höfum góð kynni af.

Það skiptir okkur öllu máli að vörurnar okkar innihaldi ekki ógrynnin öll af gjörunnum viðbótarefnum, að þær séu framleiddar á hefðbundinn hátt og séu bragðgóðar á einfaldan hátt sem gerir hráefnunum kleift að láta ljós sitt skína. Við viljum geta sagt viðskiptavinum okkar allt sem þau vilja vita um vöruna - hvaðan hún kemur, hvernig hún var framleidd, hvers vegna við völdum hana inn og svo auðvitað hvernig hún er notuð, hvernig hún bragðast og hvernig hún parast með öðrum mat.

Ef þú ert á höttunum eftir einhverju sérstöku hráefni og finnur það ekki hjá okkur er þér alltaf velkomið að hafa samband við okkur og spyrjast fyrir um vöruna. Við búum að víðtæku og fjölbreyttu tengslaneti birgja og framleiðenda í Frakklandi, Ítalíu, Spáni, Grikklandi og víðar, svo það er alltaf möguleiki á því að bæta einhverju nýju við vöruúrvalið.

Okkar helstu beitilönd


Frakkland

Krydd, jómfrúarólífuolía, sultur, kjötvörur, gott edik, sinnep hunang. Périgord, Provence, Bretanía, Normandí.

Ítalía

Pasta, antipasti, balsamik, jómfrúarólífuolía, biscotti, heslihnetur. Modena, Toscana, Piemont.

Spánn

Sjávarfang, krydd, tortas, ólífuolía, paella grjón. Sevilla, Bilbao, Andalúsía.

Grikkland

Ólífuolía, balsamikedik, krydd, hunang og ólífur.

"Við viljum vera félagsmiðstöð fyrir smekkvísa, fyrir sælkera og fyrir forvitna. Við viljum eiga flest sem finnst ekki annarsstaðar, og við viljum að þú njótir þess að koma í heimsókn."

Líttu við


Heimilisfang

Skólavörðustígur 4a
101 Reykjavík
Ísland

Opnunartímar

Mánudag – Laugardag: 11–18

Sunnudag: Lokað

Hafa samband

hyalin@hyalin.is

Fyrir sérpantanir, fyrirspurnir eða almennar spurningar er best að senda okkur tölvupóst.